Orkubóndinn
Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!
Orkubóndinn er námskeið fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur, bændur og alla sem hafa áhuga á að beisla orkuna heima fyrir. Á námskeiðinu verður fjallað á aðgengilegan hátt um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða jafnvel fjóshauginn.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun, verkfræðistofum víða af landinu og heimamenn. Í kjölfar námskeiðsins fá þeir þátttakendur sem þess óska aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.
Námskeiðsgjald er 3.000 krónur. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru léttar veitingar í hádegi og kaffi.
Orkubóndinner samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvits, Orkustofnunar, ÍSOR, Iðnaðarráðuneytisins, Verkís, atvinnuþróunarfélaga og sveitarfélaga víða um land.
| Orkubóndinn á Suðurlandi | 6. og 7. október 2009 | |
| Orkubóndinn á Húsavík | 27. og 28. október 2009 | |
| Orkubóndinn á Ísafirði | 26. og 27. nóvember 2009 | |
| Orkubóndinn á Egilsstöðum | 12. og 13. janúar - sjá dagskrá að neðan | |
| Orkubóndinn í Höfn | 26. og 27. janúar | |
| Orkubóndinn á Sauðárkróki | 23. og 24. febrúar | Skráning hér |
| Orkubóndinn í Vestmannaeyjum | 23. og 24. mars | Skráning hér |
| Orkubóndinn í Borgarnesi | 13. og 14. apríl | Skráning hér |
| Orkubóndinn í Reykjavík | 11. og 12. maí | Skráning hér |
Orkubóndinn á Sauðárkróki verður haldinn í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
Orkubóndinn í Reykjavík verður haldinn í Bændahöllinni, Harvard-sal, á Hótel Sögu.
Dagskrá Orkubóndans 23. febrúar á Sauðárkróki
10:00 Skráning
10:15 Skipulag námskeiðsins
10:20 Endurnýjanlegar orkulindir og aðgengi þeirra á Ísland. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
11:00 Orkulindir sem eru lengra undan í tíma. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöð Íslands
12:30 Hádegisverður
13:00 Virkjun vatnsafls Árni Sigurðsson verkfræðistofu Norðurlands, Einar Júlíusson Mannvit og Jón Snæbjörnsson Verkís
14:00 Jarðvarmi Ragnar Ásmundsson Ísor
14:50 Gerð eigin eldsneytis. Ingólfur Þorbjörnsson, framkvæmdarstjóri efnis-, líf- og orkudeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
15:30 Varmadælur. Reglugerðir og umhverfismál. Sigurður Ingi Friðleifsson Orkustofnun
16.30 Áhugasviðum og viðfangsefnum fundarmanna safnað saman. Undirbúningsvinna fyrir seinni dag byggð á verkefnishugmyndum sem fyrir liggja.
16:45 Lok fyrri dags
Dagskrá Orkubóndans 24. febrúar - Sauðárkróki
10:00 Skipulagning
10:30 Þátttakendur skipta sér í hópa eftir áhugasviðum og viðfangsefnum undir leiðsögn leiðbeinanda
12:30 Hádegisverður
13:00 Samantekt vinnuhópa - staða hugsanlegra verkefna og umræður um framhald þeirra undir leiðsögn Þorsteins Inga Sigfússonar.
13.35 Slit Viðurkenningarskjöl afhent
13.55 Þátttakendum á Orkubóndanum er boðið að vera viðstaddir undirritun samning um opnun Fab Lab smiðju í Skagafirði að samningnum standa Hátæknisetur Íslands ses, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sveitarfélagið Skagafjörður og Nýsköpunarmiðstöð Íslands
14:15 Þátttakendur sameinast í bíla og farið í heimsókn að skoða aðaldælustöð Skagafjarðarveitna ehf. við Borgamýri á Sauðárkróki, þar verður kynnt starfsemi hitaveitunnar í Skagafirði og boðið upp á veitingar.
Nánari upplýsingar gefa: K. Brynja Sigurðardóttir, Brynjasig@nmi.is eða í síma 522 9000








