Fab Lab
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni.

Markmið
Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á persónumiðaðri framleiðslu, stafrænum framleiðsluaðferðum í iðnaði og að efla nýsköpun á Íslandi. Þá er verkefninu ætlað að auka tæknilæsi almennings og almenna tæknivitund. Markmið verkefnisins eru enn fremur að skapa vettvang fyrir nýsköpun og að efla samkeppnishæfni iðnaðarfyrirtækja, menntastofnana og nemenda.
Fab Lab smiðjan mun auka tæknilæsi almennings og skapa möguleika á aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu með því að stuðla að nýsköpun.
Fyrir hverja er Fab Lab smiðjan?
Fab Lab smiðjan er ætluð frumkvöðlum, nemendum, almenningi, fyrirtækjum og stofnunum.
Staðsetning
Fab Lab smiðja er í starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands að Faxastíg 36, í Vestmannaeyjum, s: 481 3355 / 522 9440. Starfsmaður er Frosti Gíslason - frosti@nmi.is
Einnig er Fab Lab smiðja á Sauðárkróki allar upplýsingar um Fab Lab á Sauðárkróki veitir Þorsteinn Broddason, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, í síma 522 9482 - steini@nmi.is.
Á Ísafirði er Fab Lab smiðja sem staðsett er í Menntaskólanum á Ísafirði. Starfsmaður á Ísafirði er Albertína Friðbjörg Elíasdóttir sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 522 9460 - albertina@nmi.is.