Fyrirmyndarstofnun ársins 2020

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur verið valin Fyrirmyndarstofnun ársins 2020 í sínum stærðarflokki. 

Valið á Stofnun ársins 2020 var tilkynnt í gegnum streymi 14. okt. en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.
Könnunin náði til um 12 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneyti og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.

Fyrirmyndarstofnanir
Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Í flokki stærstu stofnana eru fimm fyrirmyndarstofnanir og er gaman að segja frá því að nokkrir nýliðar eru á listanum. Þær eru auk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (sem lenti í 27. sæti í fyrra), Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (sem var í 10. sæti í fyrra), Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra (sem vermdi níunda sætið í fyrra en fimmta sætið árið þar á undan), Ríkisendurskoðun (sem sigraði fyrir ári) og Menntaskólinn við Hamrahlíð (sem lenti í 13. sæti á síðasta ári og 24. sæti árið þar á undan).