Úthlutun styrkja úr Stafrænu forskoti
Búið er að úthluta ráðgjafastyrkjum til átta fyrirtækja úr verkefninu Stafrænu forskoti, samtals að upphæð kr. 3.600.000 kr. Styrkirnir eru ætlaðir til kaupa á ráðgjöf við að innleiða stafrænar lausnir hjá fyrirtækjunum en þau hafa öll sótt vinnustofur Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um stafrænan stefnu og markaðssetningu. Alls bárust tuttugu og níu umsóknir í ráðgjafastyrki í verkefnið ,,Stafrænt forskot".
Skilyrði fyrir að geta sótt um styrkin voru: að hafa mætt á vinnustofur ,,Stafrænt forskot", vera fyrirtæki á landsbyggðinni, (stofnanir gátu ekki sótt um).
Verkefnin átta eru:
Gistiheimilið Lyngholt - Þórshöfn
Húss Handanna - Egilsstaðir
Eurovision í ferðaþjónustu - Húsavík
Midgard Base Camp - Hvolsvöllur
Léttari lausnir - Siglufjörður
Understand Iceland - Selfoss
Kakalaskáli - Varmárhlíð
Litli hvíti kastalinn - Reykjanesbær
Stafrænt forskot - markaðssetning á samfélagsmiðlum, er verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem unnið er í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga um allt land með stuðningi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í gegnum byggðaáætlun. Verkefnastjórar eru Arna Lára Jónsdóttir og Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir.
Öll fyrirtæki geta nýtt tækifæri sem liggja í því að nýta stafræna tækni í markaðssetningu og rekstri. Þau fyrirtæki sem taka þátt í vinnustofunum hafa kost á að sækja um þennan styrk og verður næsta úthlutun auglýst eftir að næstu vinnustofur verða farnar af stað. Þar sem Nýsköpunarmiðstöð Ísands hættir um áramótin flyst verkefnið til en ekki er enn ljóst hvert.
Nánari upplýsingar eru að finna á forskot.nmi.is
![Nýja Rb blaðið um rakaöryggi bygginga](/static/news/sm/crop-rb_blad_thumb.jpg)
![Fyrirmyndarstofnun ársins 2020](/static/news/sm/crop-gildin-okkar.jpg)